Fyrsti leikur KA U í kvöld kl. 20:30

Handbolti

Ungmennalið KA hefur leik í Grill66 deildinni í kvöld er strákarnir taka á móti Víking kl. 20:30. KA U gerði sér lítið fyrir og vann sigur í 2. deildinni í fyrra og leikur því í næstefstu deild í vetur.

Víkingar voru hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í efstu deild á síðustu leiktíð og ljóst að verkefni kvöldsins verður krefjandi fyrir strákana og hvetjum ykkur því að sjálfsögðu til að mæta í KA-Heimilið og styðja okkar flotta lið til sigurs, áfram KA!

Fyrir þá sem ekki komast í KA-Heimilið þá verður leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV og má nálgast útsendinguna hér fyrir neðan:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is