Haraldur Bolli til Danmerkur með U20

Handbolti
Haraldur Bolli til Danmerkur með U20
Halli Bolli kemur sterkur inn í hópinn

Haraldur Bolli Heimisson er í U20 ára landsliði Íslands sem fer til Danmerkur dagana 4.-7. nóvember næstkomandi. Þar mun liði leika tvo æfingaleiki gegn Dönum en leikið verður í Ishøj. Einar Andri Einarsson og Róbert Gunnarsson eru þjálfarar liðsins en Róbert kom inn í teymið í síðustu viku.

Haraldur Bolli hefur heldur betur stigið upp að undanförnu og á sæti í landsliðinu svo heldur betur skilið. Hann hefur komið af krafti inn í meistaraflokkslið KA undanfarna mánuði og verið að fá stærra og stærra hlutverk.

Við óskum Halla Bolla innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis í þessu spennandi verkefni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is