KA/Þór fékk spænsku bikarmeistarana

Handbolti
KA/Þór fékk spænsku bikarmeistarana
Stelpurnar ætla sér enn lengra í Evrópu!

Dregið var í 32-liða úrslit Evrópubikars kvenna í handbolta í dag en KA/Þór sló út Kósóvómeistarana í KHF Istogu í 64-liða úrslitunum samtals 63-56 og var því í pottinum þegar dregið var í höfuðstöðvum Evrópska Handknattleikssambandsins í Austurríki í dag.

KA/Þór sem tekur þátt í Evrópukeppni í fyrsta skiptið var því í lægri styrkleikaröðinni og fékk þar af leiðandi andstæðing úr efri styrkleikanum. ÍBV var einnig í pottinum og vegna þess að þær hafa leikið áður í keppninni og náð þar árangri voru þær í efri hlutanum og gátu liðin því dregist gegn hvort öðru.

Það gerðist sem betur fer ekki og fengu stelpurnar það krefjandi verkefni að mæta spænska liðinu CB Elche. Elche er spænskur bikarmeistari og hefur farið af stað af krafti í spænsku deildinni í vetur með tvo sigra og eitt jafntefli í fyrstu þremur leikjum sínum.

Lið Elche er ákaflega sterkt og kemur inn í keppnina í 32-liða úrslitunum og þurfti því ekki að leika í síðustu umferð. Liðið lék einnig í keppninni á síðustu leiktíð en tapaði þá í 32-liða úrslitunum gegn löndum sínum í Granollers. Tímabilið 2013-2014 komst liðið í 16-liða úrslit keppninnar en tapaði þar gegn Rússneska liðinu Astrakhanochka.

Áætlað er að leikirnir munu fara fram dagana 13. og 14. nóvember og 20. og 21. nóvember og er fyrri leikurinn heimaleikur okkar liðs. KA/Þór lék þó báða leikina gegn Istogu í Kósóvó og kemur í ljós á næstunni hvort liðin komi sér saman um að leika báða leikina á sama stað.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is