KA/Þór mætir Selfossi á morgun

Handbolti
KA/Þór mætir Selfossi á morgun
Mikilvægur leikur framundan (mynd: Þórir Tryggva)

Á morgun, föstudag, tekur Selfoss á móti KA/Þór í lokaleik 4. umferðar Olís deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 19:00 á Selfossi og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta og styðja stelpurnar til sigurs. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur uppá framhaldið og mikilvæg stig í húfi.

Eftir fyrstu þrjá leikina þá er lið KA/Þórs í 6. sæti með 2 stig eftir frækinn útisigur á Haukum en liðið hefur hinsvegar tapað gegn Val og ÍBV á heimavelli. Heimastúlkur eru á botni deildarinnar í 8. sæti með 1 stig eftir jafntefli gegn Stjörnunni og töp gegn ÍBV og nýliðum HK.

Fyrir þá sem ekki komast á Selfoss þá verður leikurinn í beinni útsendingu á Selfoss-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is