KA/Þór steinlá gegn toppliðinu (myndir)

Handbolti
KA/Þór steinlá gegn toppliðinu (myndir)
Fram reyndist of stór biti (mynd: Þórir Tryggva)

KA/Þór tók á móti Fram í Olís deild kvenna í handbolta á laugardaginn. Fyrirfram var vitað að verkefni dagsins væri ansi erfitt en Fram er á toppi deildarinnar og hefur án nokkurs vafa verið besta lið landsins í vetur.

Það varð ljóst strax á fyrstu mínútum leiksins að gestirnir voru mættir í KA-Heimilið til að sækja tvö stig og ekki leið á löngu uns staðan var orðin ansi erfið fyrir okkar lið. Stelpurnar gerðu sig sekar um of mörg mistök í sókninni og gegn jafn sterku liði og Fram hefur á að skipa er það hreinlega ekki í boði.

Staðan var 11-20 í hálfleik og forskotið jókst enn frekar í þeim síðari. Þegar upp var staðið fór lið Fram með 19 marka stórsigur, 24-43. Mikil vonbrigði að tapa leiknum svona stórt en þegar Fram hittir á sinn dag er líklega ekkert lið á landinu sem getur haldið í við það.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Jákvætt úr leiknum má taka að allir leikmenn liðsins fengu að spreyta sig og ekki nokkur spurning að hinar fjölmörgu ungu stelpur í okkar liði fengu þarna góða reynslu eftir að hafa reynt sig á móti besta liði landsins.

Ásdís Guðmundsdóttir var markahæst í okkar liði með 8 mörk, Ásdís Sigurðardóttir gerði 4, Aldís Ásta Heimisdóttir 3, Telma Lísa Elmarsdóttir 2, Martha Hermannsdóttir 2, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Rakel Sara Elvarsdóttir 2 og Svala Björk Svavarsdóttir 1 mark.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is