Lokahóf yngriflokka á miðvikudaginn

Handbolti
Lokahóf yngriflokka á miðvikudaginn
Frábær skemmtun framundan! (mynd: Egill Bjarni)

Lokahóf yngriflokka KA og KA/Þórs í handbolta verður haldið á miðvikudaginn klukkan 17:00 í KA-Heimilinu. Frábærum handboltavetri er nú lokið og við hæfi að kveðja tímabilið með stæl með skemmtilegum leikjum og fjölbreyttri dagskrá.

Við hvetjum alla iðkendur til að mæta og taka þátt í gleðinni og foreldrar eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta líka.

Æfingum vetrarins er nú lokið og framundan því sumarfrí frá handboltanum. Við minnum þó á að unglingaráð í samstarfi við meistaraflokka karla og kvenna verða með sumaræfingar fyrir 5. til 7. flokk (árgangar 2008-2013) sem verða frá 7. júní til 30. júní næstkomandi. Upplýsingar og skráning á æfingarnar koma á næstunni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is