Meistarar - heimildarmynd um gullstelpurnar

Handbolti

Heimildarmyndin Meistarar verður sýnd miðvikudagskvöldið 30. júní á N4 sjónvarp. Í myndinni kynnast áhorfendur Íslandsmeisturunum betur, ekki bara á vellinum heldur líka í sínu daglega lífi en þremur liðsmönnum er fylgt eftir þeim Rakel Söru, Mörthu Hermanns og Huldu Tryggva.

Þá er rætt við þjálfarann Andra Snæ, Siguróla Sigurðsson, íþróttafulltrúa KA, sem og tvo fulltrúa úr Stjórn kvennaliðsins. Gullstelpunum er fylgt eftir á handboltaæfingu og styrktaræfingu hjá Agli Ármann í TFW og áhorfendum gefst kostur á því að vera á fluga á vegg innan um liðið og sjá með eigin augum hvað liðið býr yfir góðum liðsanda og frábærum karakter.

Börnin með á æfingar

Í myndinni sést meðal annars hvernig fjölskyldulífið tvinnast við handboltann en sumar kvennanna í liðinu taka börnin sín með á æfingar og eru börnin alvön því að taka þátt.

Þá er fjallað um kostnaðinn við að rekstur liðsins.  Siguróli íþróttafulltrúi KA segir í myndinni að 85% af kostnaðinum komi úr fjáröflunum sem þýðir að leikmenn og sjálfboðaliðar þurfa að leggja mikið á sig í fjáröflunum til þess að láta dæmið ganga upp.

Fylgist með Meisturunum á miðvikudag og komist að því að stelpurnar í handknattleiksliði KA/Þórs eru ekki bara meistarar á vellinum heldur líka í lífinu öllu.

 

Fyrir nánari upplýsingar um myndina má heyra í:   Dagskrárgerðarkonunni Rakel Hinriksdóttur hjá N4 í s. 867 7095 eða Mörthu Hermannsdóttir, handknattleikskonu s. 8675361.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is