Mikilvægur heimaleikur gegn Gróttu

Handbolti

Það er stórleikur í KA-Heimilinu á morgun, mánudag, þegar KA tekur á móti Gróttu í 4. umferð Olís deildar karla. Liðunum var báðum spáð botnbaráttu í vetur og ljóst að það eru gríðarlega mikilvæg stig í húfi er liðin mætast á morgun.

Við viljum benda á að allur ágóði af leiknum mun renna til fjölskyldu Ragnars Snæs og Fanneyjar sem tekst nú á við erfiða tíma. Einnig verða KA bolir merktir átakinu til sölu sem styrkir þau að sjálfsögðu.

KA liðið hefur leikið gríðarlega vel á heimavelli fyrstu tvo leikina og eru strákarnir með 4 stig eftir sigra á Akureyri og Haukum. Í síðasta leik tapaði liðið hinsvegar á útivelli gegn Fram eftir hörkuleik.

Gestirnir í Gróttu eru hinsvegar með 1 stig þrátt fyrir góða spilamennsku í fyrstu leikjunum. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst Gróttumönnum að missa unnin leik niður í jafntefli gegn ÍBV í Eyjum og hafa í kjölfarið tapað gegn Val og FH þar sem þeir stóðu vel í báðum liðum.

KA og Grótta mættust nýverið á Norðlenska Greifamótinu í hörkuleik þar sem Gróttumönnum tókst að landa sigri á endanum. Leikurinn var mjög harður og léku gestirnir ansi fastan leik, eitthvað segir manni að strákarnir okkar vilji hefna fyrir þann slag!

Leikurinn á morgun hefst klukkan 19:30 og hvetjum við ykkur öll til að mæta. Stemningin á fyrstu leikjunum hefur verið frábær og það er um að gera að halda því áfram. Þá er frábært að geta lagt góðu málefni lið í leiðinni, hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is