Myndir frá Íslandsmeisturum KA í 4. flokki

Handbolti
Myndir frá Íslandsmeisturum KA í 4. flokki
Það var vel tekið á móti strákunum upp í KA

KA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki yngri í handboltanum um helgina þegar strákarnir unnu frábæran 15-20 sigur á Aftureldingu í úrslitaleik. Strákarnir töpuðu ekki leik allan veturinn og standa því uppi sem Íslands- og Deildarmeistarar.

Það var vel tekið á móti strákunum þegar þeir sneru aftur heim með Íslandsmeistaratitilinn en nýkrýndir Íslandsmeistarar KA/Þórs fóru fyrir skemmtilegri athöfn við KA-Heimilið.

Þórarinn Stefánsson var á svæðinu og myndaði fagnaðarlæti strákanna sem voru eðlilega mikil. Við þökkum honum kærlega fyrir myndirnar og óskum strákunum til hamingju með frábæran vetur.


Smelltu á myndina til að skoða myndir frá fagnaðarlátum strákanna


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is