Sigþór Gunnar í U-21 og Svavar í U-19

Handbolti

Í dag voru gefnir út æfingahópar hjá U-21 og U-19 ára landsliðum Íslands í handbolta. KA á einn fulltrúa í hvorum hóp en leikstjórnandinn Sigþór Gunnar Jónsson er í U-21 hópnum og Svavar Sigmundsson markvörður er í U-19 hópnum.

Sigþór Gunnar stóð sig frábærlega í sumar á EM þegar íslenska landsliðið náði 7. sæti á mótinu og er hann því á sínum stað. Einar Andri Einarsson er nýtekinn við hópnum en strákarnir munu leika tvo vináttuleiki gegn Frökkum 26. og 27. október í Hafnarfirði.

Svavar kemur nýr inn í U-19 ára landsliðið sem endaði í 2. sæti á EM í sumar en Heimir Ríkarðsson þjálfari gerir töluverðar breytingar á hópnum með það í huga að gefa fleirum möguleika að sýna sig. Dagur Gautason sem er fastamaður í liðinu fær því hvíld að þessu sinni.

Við óskum strákunum til hamingju með valið sem og góðs gengis í verkefnum sínum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is