Slæmt tap gegn Gróttu í dag

Handbolti
Slæmt tap gegn Gróttu í dag
Slæmt tap staðreynd (mynd: Þórir Tryggva)

KA sótti Gróttu heim í Olís deild karla í kvöld en eftir góðan leik gegn Fram í síðustu umferð má segja að Gróttumenn hafi kippt okkar mönnum harkalega niður á jörðina í dag.

Grótta tók frumkvæðið í leiknum strax í upphafi og leiddi leikinn upp í stöðuna 6-4 en þá kom góður kafli KA liðsins sem skoraði þrjú mörk í röð og náði nokkru síðar tveggja marka forskoti 7-9. En Gróttumenn voru ekki á þeim buxunum að gefast upp, nú var komið að þeim að skora þrjú mörk í röð og leiddu í kjölfarið 14-11 í hálfleik.

Strákarnir virtust ekki alveg klárir í byrjun seinni hálfleiks og juku Gróttumenn forskotið upp í sex mörk, 21-15. Strákarnir minnkuðu muninn í 21-18 og síðar í 23-21 en aftur náði Grótta sex marka forskoti, 27-21 og lítill tími til stefnu.

KA náði aðeins að klóra í bakkann í lokin en því miður kom sá kippur of seint og Grótta vann fjögurra marka sigur, 29-25.

Mörk KA: Áki Egilsnes 5, Dagur Gautason 5, Jón Heiðar Sigurðsson 4 (3 úr vítum), Tarik Kasumovic 4, Allan Nordberg 3, Einar Birgir Stefánsson 2, Sigþór Árni Heimisson 1 og Sigþór Gunnar Jónsson 1 mark.
Jovan Kukobat varði 10 skot í leiknum og Svavar Ingi Sigmundsson 3 þar af eitt vítakast.

Því miður náðu strákarnir sér aldrei almennilega á strik í dag gegn baráttuglöðum Gróttumönnum og sigur þeirra því sanngjarn.

Næsti leikur KA er ekki fyrr en 24. febrúar en þá kemur Stjarnan í heimsókn og sá leikur svo sannarlega mikilvægur í baráttunni framundan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is