Sprettsmótið fór fram um helgina

Handbolti
Sprettsmótið fór fram um helgina
Frábært mót í alla staði

Sprettsmótið í handbolta var haldið í KA-Heimilinu um helgina þar sem strákar og stelpur í 8. og 7. flokki léku listir sínar. Þetta var fyrsta mót margra keppenda og var mjög gaman að fylgjast með krökkunum læra betur og betur á reglurnar og spil eftir því sem leið á daginn.

Alls kepptu 23 lið á mótinu, þar af 19 frá KA en því miður var ófært frá Húsavík og því komust Völsungar ekki á mótið. Húsvíkingar munu þó koma í vikunni á æfingar bæði hjá KA og Þór þannig að allir fá skemmtilega spilæfingu.

Að mótinu loknu fengu allir keppendur svo pizzuveislu frá Sprettinum og má með sanni segja að allir hafi skemmt sér konunglega á þessu móti þar sem úrslitin skiptu ekki máli heldur að æfa að spila handbolta.


Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir frá mótinu


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is