Sumaræfingar klárar og lokahóf í kvöld

Handbolti

Í kvöld klukkan 17:00 fer fram lokahóf yngriflokka í handbolta og hvetjum við að sjálfsögðu alla iðkendur sem og foreldra til að mæta og taka þátt í skemmtuninni. Að venju verður mikið fjör, pizzuveisla og hinir ýmsu leikir í boði.

Vetraræfingunum í handboltanum er nú lokið en það styttist í að sumaræfingar hefjist og hvetjum við alla áhugasama til að skrá sig sem fyrst og hefja strax undirbúning fyrir næsta vetur. Skráning fer fram á ka.felog.is, ef einhverjar spurningar eru varðandi æfingarnar skal hafa samband við Jónatan yfirþjálfara, jonni@ka.is.

Æfingarnar munu hefjast þriðjudaginn 4. júní og standa til 28. júní. Æfingatímabilið er því 4 vikur og er æft í KA-Heimilinu.

  Þri Mið Fim Fös
KK 2006-2008 13:00-14:00 styrkur 13:10 13:00-14:00  
KVK 2006-2008 14:30-15:30 styrkur 14:15 14:30-15:30  
KK 2003-2005 16:15-17:15 styrkur 07:00 16:15-17:15 styrkur 07:00
KVK 2003-2005 19:00-20:00 styrkur 07:00 19:00-20:00 styrkur 07:00


Verð fyrir sumaræfingarnar er eftirfarandi:
Árgangar 2006-2008: 15.000 krónur
Árgangar 2003-2005: 20.000 krónur


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is