4 fulltrúar KA í kvennalandsliðinu

Blak
4 fulltrúar KA í kvennalandsliðinu
KA skipar stóran sess í landsliðshópnum

Í kvöld var birtur lokahópur blaklandsliðs Íslands sem mun leika á Novotel Cup í Lúxemborg dagana 3.-5. janúar næstkomandi. KA á alls fjóra fulltrúa í hópnum en það eru þær Gígja Guðnadóttir, Helena Kristín Gunnarsdóttir, Jóna Margrét Arnarsdóttir og Valdís Kapitola Þorvarðardóttir.

Jóna Margrét er aðeins 16 ára gömul og er nýliði í hópnum en Helena Kristín hefur leikið 24 landsleiki, Gígja hefur leikið 9 og Valdís hefur leikið 5 leiki með landsliðinu.

Topplið KA skipar því ansi stóran sess í landsliðshópnum en 14 leikmenn skipa lokahópinn. Við óskum okkar glæsilegu fulltrúum til hamingju með valið sem og góðs gengis í Lúxemborg.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is