50 miðar í boði á stórleik kvöldsins

Blak
50 miðar í boði á stórleik kvöldsins
Jóna er klár í slaginn!
KA tekur á móti Aftureldingu í stórleik fyrstu umferðar Mizunodeildar kvenna í blaki klukkan 20:00 í kvöld. Liðin börðust um titlana í fyrra og er spáð efstu tveimur sætunum í vetur og má því búast við hörkuleik!
 
Athugið að vegna Covid stöðunnar eru aðeins 50 miðar fyrir 16 ára og eldri í boði á leikinn. Ársmiðar geta tryggt sér miða í afgreiðslu KA-Heimilisins frá kl. 16:00 en almenn miðasala hefst kl. 19:00 ef enn verða eftir miðar.
 

Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á KA-TV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is