Blakdeild KA og Avis með styrktarsamning

Blak
Blakdeild KA og Avis með styrktarsamning
Okkar öflugi hópur sáttur með nýja samninginn

Blakdeild KA gat ekki bara glaðst yfir þremur frábærum sigrum hjá karla- og kvennaliðum sínum um helgina því deildin skrifaði undir nýjan og glæsilegan styrktarsamning við Avis bílaleigu. Blakdeild KA rekur gríðarlega metnaðarfullt starf en bæði karla- og kvennalið liðsins eru í efsta sæti Mizunodeildanna auk þess sem þau munu bæði keppa í Evrópukeppni í upphafi febrúar.

Það skiptir því sköpum að hafa góða styrktaraðila til að standa undir rekstrinum og þessi samningur við Avis einstaklega góðar fréttir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is