Blakið hefst aftur í dag að Varmá

Blak

Eftir langa pásu er loksins komið að öðrum leik karlaliðs KA í blaki er liðið sækir Aftureldingu heim að Varmá klukkan 15:00 í dag. Það má búast við hörkuleik en bæði lið ætla sér stóra hluti í vetur.

Bæði lið eru búin með einn leik í vetur og eru strákarnir okkar staðráðnir í að sækja mikilvægan sigur eftir erfiðan fyrsta leik gegn Hamar. Sá leikur tapaðist 0-3 en Hvergerðingar eru með frábært lið sem verður að teljast ansi sigurstranglegt þegar upp er staðið.

Á sama tíma og KA tapaði gegn Hamar í fyrstu umferð unnu Mosfellingar öruggan 0-3 sigur á Þrótti Vogum. Leikurinn verður í beinni á heimasíðu Blaksambandsins, bli.is, og um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is