Íslandsmeistaratitill karla í húfi í kvöld!

Blak
Íslandsmeistaratitill karla í húfi í kvöld!
Strákarnir þurfa á þér að halda í kvöld!

Nú er röðin komin að körlunum en KA og HK mætast rétt eins og hjá konunum í gær í hreinum úrslitaleik í KA-Heimilinu klukkan 19:30 í kvöld. KA er Deildar- og Bikarmeistari á þessu tímabili auk þess sem liðið er ríkjandi Íslandsmeistari og klárt mál að strákarnir ætla sér þann stóra í kvöld.

Til að það gangi upp þurfum við hinsvegar að endurtaka leikinn frá því í gær og troðfylla KA-Heimilið. Stemningin á kvennaleiknum var magnþrungin og átti klárlega stóran þátt í því að stelpurnar kláruðu leikinn sannfærandi.

Vinnist sigur í kvöld yrði þetta stórkostlega tímabil sögulegt en aldrei í blaksögunni hefur sama félagið unnið alla titla karla- og kvennamegin sama tímabilið, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is