KA-Skautar unnu 4. deild kvenna

Blak
KA-Skautar unnu 4. deild kvenna
Frábær árangur hjá KA-Skautum í ár

Um helgina lauk deildarkeppni í neðri deildunum í blakinu og voru tvö lið KA í eldlínunni. KA-Skautar gerðu sér lítið fyrir og stóðu uppi sem sigurvegarar í 4. deild kvenna sem tryggir liðinu sæti í 3. deild á næsta keppnistímabili.

KA-Skautar höfðu fyrr í vetur unnið hina hefðbundnu deild en um helgina var leikið í A-úrslitum þar sem liðið vann alla leiki sína nema einn og stóð uppi sem sigurvegari eftir harða baráttu við Þrótt Reykjavík. Við óskum liðinu til hamingju með árangurinn.


KA-Freyjur sáttar með bronsið í 5. deild

KA-Freyjur léku í 5. deildinni og eftir flotta frammistöðu endaði liðið í 3. sæti aðeins einu stigi á eftir liðinu í 2. sæti og getur liðið verið ansi ánægt með veturinn þó ekki hafi tekist að vinna sig upp um deild að þessu sinni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is