Skemmtilegar strandblaksæfingar í sumar

Blak

Blakdeild KA verður með skemmtilegar strandblaksæfingar fyrir hressa krakka í sumar. Strandblaksæfingarnar hafa slegið í gegn undanfarin ár og ljóst að það ætti enginn að láta þetta framtak framhjá sér fara.

Æfingarnar hefjast 6. júní næstkomandi og verða út júlí mánuð. Allar æfingar fara fram á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi.

U10 og U12 ára hóparnir æfa á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:00 til 18:30.

Stelpur U14 og U16 æfa mánudaga og miðvikudaga klukkan 17:00 til 18:30.

U18 og U15 hópur stráka æfa þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 17:00 til 18:30.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is