Stór blakhelgi framundan hjá KA liðunum

Blak
Stór blakhelgi framundan hjá KA liðunum
Stelpurnar ætla sér þrjá sigra um helgina

Kvennalið KA í blaki stendur í ströngu um helgina en liðið tekur þrívegis á móti Þrótti Reykjavík. Í dag, föstudag, mætast liðin klukkan 20:30 í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins. Karlalið KA hinsvegar sækir lið Hamars heim í Hveragerði á sunnudag í sínum leik í 8-liða úrslitum keppninnar.

Kvennaliðin mætast svo aftur í Mizunodeildinni á laugardag og sunnudag. Leikurinn á laugardeginum fer fram klukkan 11:30 og leikurinn á sunnudeginum fer fram klukkan 13:00.

Athugið að KA-TV mun sýna leiki kvennaliðsins á föstudag og sunnudag, því miður mun ekki takast að sýna leikinn á laugardeginum.

Það er alveg ljóst að bæði okkar lið ætla sér sæti í undanúrslitum í bikarnum, strákarnir eru ríkjandi Bikarmeistarar og hafa engan áhuga á að afhenda öðrum bikarinn. Þá eru stelpurnar í svakalegri toppbaráttu við HK í Mizunodeildinni og þurfa á þriggja stiga sigrum að halda.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í KA-Heimilið og styðja stelpurnar til sigurs.

Hér má sjá útsendingu KA-TV frá leik kvöldsins hjá konunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is