Tilnefningar til íþróttakarls KA 2022

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak | Lyftingar

Sex karlar eru tilnefndir til íþróttakarls KA fyrir árið 2022. Þetta er í þriðja skiptið sem verðlaunin eru afhent hvoru kyni og hefur ríkt mikil ánægja með þá breytingu. Deildir félagsins tilnefndu aðila úr sínum röðum og verður valið kunngjört á 95 ára afmæli félagsins þann 7. janúar næstkomandi.

Alex keppir í -93kg þyngdarflokki í svokölluðum búnaðarlyftingum en Alex keppti á þremuralþjóðlegum mótum á árinu fyrir hönd Kraftlyftingasambands Íslands sem og KA. Í maí keppti hann á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum sem haldið var í Pilsen í Tékklandi og endaði þar í áttunda sæti í sterkum flokki. Á því móti var hnébeygjan öflugust og lenti hann í fjórða sæti í þeirri grein í sínum þyngdarflokki þegar hann lyfti 325kg.

Í september hélt Alex til Frakklands og keppti í Vestur-Evrópu mótinu en þar átti hann stórleik. Hann gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flokk ásamt því að vera stigahæsti lyftingamaður mótsins og hélt því heim til íslands aftur sem sigurvegari mótsins. Á mótinu sló Alex íslandsmet í samanlagðri þyngd þegar hann lyfti 837.5kg í heildina og sló þá einnig íslandsmetið í hnébeygju með lyftu uppá 347.5kg, en hnébeygjan var einnig Vestur-Evrópu met auk þess að vera stigahæsta hnébeygja sem íslenskur lyftingamaður hefur náð á móti í búnaðarlyftingum.

Með þessum árangri náði Alex A-landsliðs lágmörkum og vann sér þannig inn þáttökurétt á heimsmeistaramótinu árið 2022. Í nóvember hélt Alex svo til Danmerkur að keppa á heimsmeistaramótinu í búnaðarlyftingum. Þar átti Alex þvímiður ekki erindi sem erfiði þar sem hann féll úr leik eftir hnébeygjugreinina. Þetta var fyrsta heimsmeistaramót Alex á ferlinum og fór hann heim með reynslu í pokahorninu sem mun nýtast honum á komandi mótum.

Árið 2022 skilaði Alexi 14.sæti á heimslistanum og er það í samræmi við þær væntingar og markmið sem hann hafði sett sér fyrir árið. Einnig endaði hann sem næst stigahæsti lyftingamaður ársins í kraftlyftingum óháð þyngdarflokkum. En markmiðin fyrir árið 2023 eru að enda í top 10 á heimslistanum og að berjast um bikara á alþjóðlegum mótum auk þess að efla lyftingastarf innan KA.

Gylfi er góður og öflugur júdó maður sem hefur verið fastamaður í yngrilandsliðum Íslands síðustu ára. Hann er nú viðloðandi U21 árs landsliðsins en þar áður í U18 og U15. Gylfi keppir í mínus 73 kg flokki en helstu afrek hans á árinu 2022 talið í tímaröð eru 2. sæti á afmælismóti Judósambands Íslands, 2. sæti á vormóti JSÍ og 3. sæti á Íslandsmóti seniora. Vegna meiðsla missti Gylfi af seinni hluta keppnistímabils en kemur án nokkurs vafa sterkur til baka.

Framtíðin er svo sannarlega björt hjá þessum öfluga kappa en auk þess að taka vel á því sjálfur hefur hann miðlað vel af sinni reynslu til yngri iðkenda júdódeildar KA og er svo sannarlega til fyrirmyndar innan sem utan vallar.

Ívar Örn er varnarmaður fæddur 1996 og uppalinn hjá KA. Ívar átti ótrúlega gott tímabil í Bestu deild karla í sumar en Ívar spilaði alls 26 af 27 deildarleikjum KA í sumar og var algjör lykilmaður í frábærum árangri liðsins í sumar. Ívar fékk mikið lof fyrir leik sinn frá íslenskum fótboltasérfræðingum og var á endanum valinn í lið ársins ásamt því að vera valinn besti leikmaður KA af leikmönnum sjálfum í lok móts.

Ívar á stóran þátt í frábærum árangri KA sem endaði í 2 sæti Bestu deildarinnar 2022 og tryggði sér þannig þátttökurétt í Evrópukeppni 2023. KA var það lið sem fékk næst fæst mörk á sig síðasta sumar og var Ívar máttarstólpi í frábærri vörn KA-liðsins sem tryggði þennan frábæra árangur.

Mateo hefur verið burðarás karlaliðs KA í blaki undanfarin ár og var síðasta ár engin undantekning. Mikil uppbygging er að eiga sér stað á karlaliði KA og voru margir ungir leikmenn sem fengur stór hlutverk á síðasta tímabili og nýttist styrkur Mateos afar vel sem reynslu mikill leikmaður og góð fyrirmynd innan sem utan vallar.

Mateo var annar stigahæstur í úrvalsdeildinni með 345 stig á síðasta tímabili auk þess að fara fyrir liðinu er strákarnir fóru alla leið í bikarúrslit gegn stórliði Hamars og var Mateo stigahæsti maður vallarins í spennandi leik. Hann hefur á undanförnum árum unnið allt sem hægt er að vinna sem leikmaður karlaliðs KA og á sama tíma unnið allt sem hægt er að vinna sem þjálfari kvennaliðs KA.

Hann stýrir nú báðum liðum og má með sanni segja að Mateo sé algjör lykilmaður í uppbyggingu blakstarfs KA hvort sem er innan sem utan vallar.

Nökkvi Þeyr sló heldur betur í gegn á árinu 2022 en hann blómstraði í KA-liðinu í sumar, skoraði hvorki meira né minna en 17 mörk í 20 leikjum í deildinni og hélt sama hætti í bikarævintýri liðsins einnig. Hann endaði sem markahæsti leikmaður ársins þrátt fyrir að missa af síðustu 7 leikjum tímabilsins eftir að draumur hans um atvinnumensku rættist er hann gékk til liðs við KV Beerschot í Belgíu í byrjun september.

Nökkvi lagði gríðarlega mikla aukavinnu á sig á keppnistímabilinu sem skilað sér vel inn á vellinum og í lok tímabilsins var hann valinn í lið ársins hjá öllum fjölmiðlum sem deildinni sjálfri. Nökkvi var markahæsti leikmaðurinn, besti sóknarmaðurinn og að endingu var hann líka valinn besti leikmaður deildarinnar bæði af sérfræðingum sem og leikmönnum og þjálfurum deildarinnar. Nökkvi hefur síðan haldið áfram að blómstra á haustmánuðum í Belgiu þar sem hann spilar alla leiki og hefur haldið áfram að standa sig frábærlega. Sannarlega frábært ár hjá þessum öfluga leikmanni.

Óðinn Þór gekk til liðs við KA sumarið 2021 og var ekki lengi að spila sig inn í hjörtu stuðningsmanna KA. Hann sýndi ótrúlega takta þegar hann skoraði mörk í öllum regnbogans litum og stóð uppi sem markakóngur Olísdeildarinnar tímabilið 2021-2022. Hann átti stóran þátt í að KA komst í bikarúrslit í fyrsta skiptið frá árinu 2004 og var valinn í lið ársins.

Á meðan dvöl hans hjá KA stór fór hann á skammtíma lánssamning hjá Vfl Gummersbach í Þýskalandi undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar og stóð sig afar vel. Í kjölfarið af því var hann í 35 manna landsliðshóp Íslands á EM í Búdapest og er nú í lokahóp landsliðsins sem tekur þátt á HM nú í janúar.

Fyrir dvöl sína fyrir norðan var Óðinn um þriggja ára skeið í Danmörku hjá GOG og
Holstebro áður en en í sumar gekk hann í raðir Kadetten í Sviss þar sem hann raðar nú inn mörkunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is