Tveir 0-3 sigrar á Neskaupstað í dag

Blak
Tveir 0-3 sigrar á Neskaupstað í dag
Frábær uppskera í dag (mynd: Þórir Tryggva)

Fyrri dagur blakliða KA á Neskaupstað var ansi hreint góður en bæði karla- og kvennalið KA uppskáru 0-3 sigra. Það er komið að úrslitastundu í blakinu og stefnir kvennalið KA á að tryggja sér sigur í Mizunodeildinni en það yrði annar titill KA í kvennablaki frá upphafi.

Strákarnir hófu leik en eins og flestir vita tryggði KA liðið sér sigur í Mizunodeildinni fyrir nokkru síðan. Heimamenn í Þrótti eru hinsvegar í 5. sæti deildarinnar og í harðri baráttu um betra sæti í úrslitakeppninni sem tekur við að deildinni lokinni.

KA fór með 0-3 sigur af hólmi þar sem liðið dreifði álaginu frekar vel og er mjög gaman að sjá hve vel flestir leikmanna eru að nýta tækifærið nú þegar minna er undir í leikjum liðsins. KA vann fyrstu hrinuna 19-25, þá næstu 22-25 og síðustu hrinuna sannfærandi 15-25.

Liðin mætast aftur á morgun klukkan 13:00 í lokaleik KA liðsins í deildinni en framundan er baráttan um Bikarmeistaratitilinn og Íslandsmeistaratitilinn.

Það er hinsvegar töluvert meira undir í leikjum kvennaliðs KA um helgina en KA liðið þurfti fyrir helgina á 5 stigum af 6 mögulegum til að tryggja Deildarmeistaratitilinn. Þróttur Nes hafði unnið fyrri leik liðanna í KA-Heimilinu 2-3 í svakalegum leik og mátti því búast við erfiðum leik.

Það varð hinsvegar lítið um spennu í fyrstu hrinu þar sem KA liðið sýndi og sannaði að liðið er líklega það besta á landinu í dag. Stelpurnar léku við hvurn sinn fingur og unnu 12-25 sigur. Heimastúlkur spyrntu vel frá sér í þeirri næstu og komust strax í 5-0. En KA liðið kom til baka og vann á endanum 21-25 sigur eftir mikla spennu.

Það var svo aldrei spurning í þeirri þriðju hvoru megin sigurinn myndi enda og vann KA 17-25 sigur og samanlagt 0-3. Frábær frammistaða hjá okkar liði og ljóst að liðinu dugir sigur á morgun til að tryggja Deildarmeistaratitilinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is