Verða stelpurnar Deildarmeistarar um helgina

Blak
Verða stelpurnar Deildarmeistarar um helgina
Fer bikarinn á loft? (mynd: Þórir Tryggva)

Það er mikið undir í blakinu um helgina þegar bæði karla- og kvennalið KA í blaki sækja Þrótt Neskaupstað heim. Þetta eru lokaleikir liðanna í Mizunodeildinni í vetur en kvennalið KA getur með góðum úrslitum tryggt sér Deildarmeistaratitilinn.

Bæði lið leika í dag, laugardag og á morgun en karlaliðin mætast báða dagana klukkan 13:00 og í kjölfarið leika kvennaliðin. Karlalið KA tryggði sér Deildarmeistaratitilinn fyrir nokkru síðan en gríðarlega hörð barátta er á milli KA og HK um titilinn kvennamegin.

Takist stelpunum að krækja í 5 stig af 6 mögulegum tryggja þær sér titilinn en takist það ekki þurfa þær að bíða og sjá hvernig HK gengur í sínum leikjum en Kópavogsliðið á tvo leiki til góða á KA.

Það er þó alveg ljóst að verkefni helgarinnar er ansi krefjandi enda töpuðu stelpurnar fyrri leiknum gegn Þrótti Nes í KA-Heimilinu í vetur 2-3 og er ávallt erfitt að sækja stig fyrir austan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is