Coerver skólinn á KA-svæðinu 17.-20. júní

Fótbolti
Coerver skólinn á KA-svæðinu 17.-20. júní
Mikil ánægja hefur verið með skólann síðustu ár

Knattspyrnuskólinn Coerver Coaching International Camp verður á KA-svæðinu dagana 17.-20. júní næstkomandi. Þessar frábæru knattspyrnubúðir eru fyrir alla drengi og stúlkur fædd 2005-2011. Skólinn hefur farið fram á KA-svæðinu undanfarin ár og hefur mikil ásókn verið í skólann auk þess sem iðkendur hafa verið mjög ánægðir með þjónustuna.

Skólinn býður upp á sérhæfðar tækniæfingar og eru frábær viðbót fyrir þá sem ætla sér alla leið í fótboltanum. Tvær æfingar eru á dag, heitur hádegismatur er innifalinn milli æfinga sem og fyrirlestur um mataræði og hugarfar knattspyrnumanna.

Skólinn hefur mjög færa erlenda og íslenska þjálfara og er Heiðar Birnir Torleifsson yfirþjálfari skólans.

Verð fyrir námskeiðið er 22.900 krónur og er 10% systkinaafsláttur. Skráning fer fram á http://ka.felog.is.

Alls voru rúmlega 170 krakkar á námsskeiðinu í fyrra og má sjá hópmyndir af krökkunum sem tóku þátt hér að neðan.


Allur Coerver hópurinn saman (smelltu á myndina til að sjá hana stærri)


Yngri hópurinn (smelltu á myndina til að sjá hana stærri)


Eldri hópurinn (smelltu á myndina til að sjá hana stærri)


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is