Föstudagsframsagan: Tómas Þór

Almennt | Fótbolti
Föstudagsframsagan: Tómas Þór
Það verður líf og fjör á föstudaginn!

Föstudagsframsagan hefur slegið í gegn og núna á föstudaginn leggjum við allt undir! Fjölmiðlamaðurinn Tómas Þór Þórðarson mætir í KA-Heimilið og fer yfir fótboltann hjá KA undanfarin ár eins og honum einum er lagið.

Þá verður knattspyrnudeild með pennann á lofti og endurnýjar samninga auk þess sem vonandi verða gerðir einhverjir nýir.

Grill og meðlæti á aðeins 2.500 krónur auk þess sem hægt er að kaupa góða drykki á staðnum. Þessi veisla hefst klukkan 17:30 og hvetjum við alla til að mæta og taka þátt í gleðinni!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is