Frábært myndband frá toppslagnum

Fótbolti
Frábært myndband frá toppslagnum
Hörkuleikur á föstudaginn (mynd: Þórir Tryggva)

Það var hart barist á Dalvíkurvelli á föstudaginn þegar KA og Víkingur mættust í toppslag í Pepsi Max deildinni. Því miður féllu hlutirnir ekki með okkur að þessu sinni en strákarnir svara fyrir sig í næsta leik, það er ekki spurning!

Stefán Einar Sigmundsson var á leiknum og býður upp á virkilega skemmtilega samantekt frá hasarnum. Við þökkum honum kærlega fyrir framtakið og ykkur fyrir stuðninginn úr stúkunni!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is