Frábæru N1 móti KA lokið (myndband)

Fótbolti
Frábæru N1 móti KA lokið (myndband)
Afturelding sigraði Argentísku deildina í ár

35. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 30. júní - 3. júlí 2021. Mótið heldur áfram að stækka ár frá ári og var metþáttaka í ár er 216 lið kepptu í 9 deildum. Keppendur voru um 2.150 en alls voru leiknir 1056 leikir sem gera 29.832 mínútur af fótbolta!

Við viljum þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg kærlega fyrir aðstoðina sem er svo sannarlega ómetanleg en tæplega 600 manns aðstoðuðu félagið við utanumhaldið á mótinu.
 
Mótið heppnaðist ákaflega vel, veðrið lék við mótsgesti alla fjóra keppnisdagana og ríkti svo sannarlega mikil gleði mótssvæðinu. Rétt eins og undanfarin ár sýndi KA-TV vel frá mótinu, allir leikir á velli 8 voru sýndir og þeim lýst af kostgæfni.

Myndband N1 mótsins í ár er unnið af Tjörva Jónssyni.

Hér má sjá yfirlit yfir sigurvegara mótsins:

Argentíska deildin: Afturelding 1

Brasilíska deildin: KA 1

Chile deildin: Grindavík 1

Danska deildin: Breiðablik 5

Enska deildin: Sindri/Neisti 1

Franska deildin: Álftanes 1

Gríska deildin: Stjarnan 9

Hollenska deildin: HK 9

Íslenska deildin: Víkingur 6

Stuðboltar mótsins: Fjölnir

Háttvísi og prúðmennskuverðlaun Sjóvá: Sindri/Neisti

Háttvísisverðlaun Landsbankans og KSÍ: Reynir/Víðir

Sveinsbikarinn: ÍBV (háttvísi innan sem utan vallar)


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is