Fyrsti leikurinn í dag klukkan 16:00

Almennt | Fótbolti

Í dag fer fram fyrsti leikur tímabilsins í knattspyrnunni þegar KA tekur á móti Fram á KA-velli klukkan 16:00 í Inkasso-deildinni. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja okkar lið til sigurs!

Síðasta sumar var þrælskemmtilegt þar sem að stuðningurinn við liðið var hreint út sagt magnaður en nú viljum við gera enn betur á öllum vígsstöðum sem mun vonandi koma liðinu í efstu deild þar sem félagið á heima!

Hér má sjá nokkur skemmtileg tilþrif frá síðasta sumri sem ætti að koma okkur öllum í gírinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is