Fyrsti þáttur af Topp 5 í fótboltanum

Fótbolti

Nýr hlaðvarpsþáttur hefur hafið göngu sína þar sem Pétur Heiðar Kristjánsson og Siguróli Magni Sigurðsson fá til sín góða gesti og fara yfir hina ýmsu topplista er tengjast knattspyrnuliði KA frá árinu 2000 til dagsins í dag og ber þátturinn nafnið Topp 5.

Í fyrsta þætti fá þeir félagar til sín Skúla Eyjólfsson fyrrum leikmann KA og núverandi stjórnarmann og renna þeir félagar yfir mestu karakterana sem hafa verið í liði KA undanfarin tuttugu ár. Allir hafa þeir félagar mismunandi tengingu við lið KA og því ansi gaman að heyra hverjir skipa listana þeirra.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is