Glæsisigur KA á Stjörnunni (myndaveislur)

Fótbolti
Glæsisigur KA á Stjörnunni (myndaveislur)
3 stig í hús! (mynd: Þórir Tryggva)

KA gerði sér lítið fyrir og vann frábæran 4-2 sigur á Stjörnunni á Greifavellinum í gær. Aðstæður á vellinum voru mjög erfiðar en KA liðið sýndi magnaðan karakter og sótti öruggan sigur að lokum sem hefði hæglega getað orðið stærri.

Hallgrímur Mar Steingrímsson gerði fyrsta mark leiksins strax á 6. mínútu er hann fylgdi á eftir vítaspyrnu sem Haraldur hafði varið en Grímsi var fljótur að átta sig. Elfar Árni Aðalsteinsson sótti hinsvegar vítaspyrnuna af mikilli baráttu.

David Cuerva gerði svo vel á 14. mínútu þegar hann komst inn í sendingu frá Haraldi markverði gestanna og var kominn einn í gegn, hann sýndi mikla óeigingirni og renndi boltanum á Grímsa sem renndi boltanum í netið.

Stuttu síðar minnkaði Þorsteinn Már Ragnarsson muninn fyrir gestina og voru hálfleikstölur 2-1. Daníel Laxdal leikmaður Stjörnunnar uppskar rautt spjald rétt fyrir hálfleik þegar hann fór of seint í tæklingu á Almarri og uppskar sitt seinna gula spjald.

Það var svo í upphafi síðari hálfleiks að Torfi Tímoteus Gunnarsson kom KA aftur í tveggja marka forskot með góðu skallamarki eftir hornspyrnu frá Grímsa. Gestirnir gáfust þó ekki upp og Þorsteinn Már Ragnarsson minnkaði muninn á 64. mínútu.

Elfar Árni Aðalsteinsson sá hinsvegar til þess að slökkt yrði strax í vonum Stjörnumanna með laglegri vippu yfir Guðjón Orra í markinu. Staðan orðin 4-2 og í kjölfarið var bara spurning hvort KA liðið myndi bæta við en svo varð ekki og frábær sigur staðreynd.


Smelltu á myndina til að sjá myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum


Smelltu á myndina til að sjá myndir Egils Bjarna Friðjónssonar frá leiknum


Smelltu á myndina til að sjá myndir Sævars Geirs Sigurjónssonar frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is