Heimaleikur í bikarnum gegn Fram

Fótbolti

Fótboltaveislan heldur áfram og nú á sunnudaginn tekur KA á móti Fram í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins klukkan 16:00 á Greifavellinum. Liðin mættust nýverið í hörkuleik sem endaði með 2-2 jafntefli og alveg ljóst að við þurfum öll að fjölmenna í stúkuna til að koma strákunum áfram í næstu umferð.

Það var virkilega gaman að sjá ykkur öll á vellinum um daginn þegar við vígðum okkar glænýju aðstöðu á KA-svæðinu og við ætlum að endurtaka leikinn á sunnudaginn. Við verðum með fanzone fyrir leik þar sem við grillum hamborgara og seljum ýmsa drykki með. Eina vitið að mæta snemma og taka þátt í stemningunni.

Þeir Þórir Tryggvason og Sævar Geir Sigurjónsson ljósmyndarar bjóða hér upp á myndaveislur frá vígsluleiknum gegn Fram og þökkum við þeim kærlega fyrir framtakið.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggva frá leiknum


Smelltu á myndina til að skoða myndir Sævars Geirs frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is