Iðunn, Ísabella og Tanía valdar í Hæfileikamótun KSÍ

Fótbolti
Iðunn, Ísabella og Tanía valdar í Hæfileikamótun KSÍ
Iðunn og Ísabella eru í hópnum ásamt Taníu

N1 og KSÍ standa að metnaðarfullri hæfileikamótun og hefur Lúðvík Gunnarsson yfirmaður verkefnisins nú valið 66 efnilegar stelpur fæddar árin 2005 og 2006. Stelpurnar munu koma saman í Kórnum í Kópavogi dagana 14.-15. september og fá þar faglega þjálfun sem mun klárlega gagnast þeim í framtíðinni.

Alls eru þrjár stelpur úr KA í hópnum en það eru þær Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Ísabella Júlía Óskarsdóttir og Tanía Sól Hjartardóttir. Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis á komandi æfingum.

Helstu markmið Hæfileikamótunar N1 og KSÍ:

  • Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með. 
  • Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar. 
  • Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum. 
  • Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar. 
  • Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum. 
  • Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is