KA fékk Háttvísisverðlaun KSÍ á Greifamótinu

Fótbolti

Greifamót KA fór fram í fjórða skiptið á dögunum en þar leika listir sínar stelpur í 7. flokki. Stelpurnar eru margar hverjar að spila sína fyrstu leiki á mótinu og má með sanni segja að stemningin á mótinu sé einstaklega skemmtileg.

KA tefldi fram 6 liðum á mótinu í ár og var virkilega ánægjulegt að sjá framfarirnar og bætingarnar hjá stelpunum er leið á mótið. Mótið fór erfiðlega af stað en stelpurnar gáfust alls ekki upp og voru algjörlega til fyrirmyndar.

Að mótinu loknu fengu stelpurnar svo afhend Háttvísisverðlaun KSÍ og Landsbankans. Það er klárt mál að árangurinn inn á vellinum mun bara verða betri með þessu flotta hugarfari sem stelpurnar búa yfir sem og þegar meiri reynsla af leikjum dettur inn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is