KA mætir í Kaplakrika í dag

Fótbolti
KA mætir í Kaplakrika í dag
Hvað gerist í stórslagnum í dag? (mynd: Þ.Tr)

KA á krefjandi verkefni fyrir höndum í dag þegar liðið sækir FH heim í Kaplakrika í 4. umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og má búast við svakalegum leik en liðin gerðu jafntefli í báðum viðureignum sínum á síðustu leiktíð. Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr 2-2 jafntefli þeirra í Kaplakrika.

Stuðningurinn við lið KA hefur verið til fyrirmyndar á fyrstu leikjum tímabilsins og vonumst við eftir að sjá sem flesta á okkar bandi á leiknum í dag, liðið vann góðan 2-0 sigur í síðasta leik og strákarnir eru staðráðnir í að bæta við stigasöfnunina í dag.

Fyrir ykkur sem ómögulega komist á leikinn þá er gaman að benda á það að leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og er þetta fyrsti leikurinn í sumar sem stöðin sýnir leik með okkar liði.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is