KA mætir Leikni F í Boganum í dag

Fótbolti

Kjarnafæðismótið í knattspyrnu heldur áfram í Boganum í dag þegar KA mætir Leikni Fáskrúðsfirði. Fyrir leikinn er KA með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki sína en þarf engu að síður á sigri að halda til að endurheimta toppsætið. Leikurinn hefst klukkan 15:15.

Gestirnir að austan eru hinsvegar aðeins búnir að leika einn leik á mótinu en þá gerðu þeir 1-1 jafntefli gegn Dalvík/Reyni.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Bogann og styðja strákana en fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is