KA og Þór/KA með góða sigra í dag

Fótbolti
KA og Þór/KA með góða sigra í dag
Óli Stefán fékk góðan sigur (mynd: Þórir Tryggva)

Karlalið KA og kvennalið Þórs/KA léku bæði æfingaleik í dag fyrir baráttuna í sumar. Strákarnir tóku á móti Fylki í uppgjöri tveggja liða í efstu deild og mætti þó nokkur fjöldi áhorfenda á Greifavöllinn og greinilegt að fólk er orðið þyrst í að upplifa íþróttir á nýjan leik.

Leikurinn bar þess merki að stutt er síðan lið fengu aftur að æfa á fullum krafti og ekki bætti úr skák að Greifavöllurinn þarf meiri tíma til að ná sér eftir þungan vetur hér fyrir norðan. Eina mark leiksins gerði Brynjar Ingi Bjarnason eftir langt innkast frá Mikkel Qvist á 20. mínútu en innköst Mikkels sköpuðu mikinn usla í dag.

Þór/KA vann góðan 3-0 sigur á Gróttu en Margrét Árnadóttir kom Þór/KA í 1-0 á 33. mínútu eftir góðan samleik með Maríu Catharinu. Skömmu síðar fékk liðið vítaspyrnu en markvörður Gróttu varði frá Huldu Ósk Jónsdóttur. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

Það var svo ekki fyrr en á 83. mínútu að stelpunum tókst að tvöfalda forskotið en Karen María Sigurgeirsdóttir fékk þá boltann fyrir utan teig og átti hörkuskot alveg út við stöng. Hulda Ósk Jónsdóttir innsiglaði svo sigurinn með laglegu marki sem reyndist vera síðasta spyrna leiksins og sannfærandi sigur í höfn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is