KA Podcastið: Ívar Örn og Donni

Fótbolti
KA Podcastið: Ívar Örn og Donni
Ívar og Donni mættu til Hjalta

KA Podcastið heldur áfram göngu sinni og að þessu sinni fær hann Hjalti Hreinsson þá Ívar Örn Árnason og Halldór Jón Sigurðsson (Donna) í skemmtilegt spjall. Bæði KA og Þór/KA unnu leiki sína um helgina og voru þeir félagar því eðlilega léttir og glaðir í spjallinu í Árnastofu.

Ívar Örn sem hefur komið af krafti inn í lið KA ræðir innkomuna inn í KA-liðið, lánstímann hjá Víkingi Ólafsvík sem og Bandaríska háskólaboltann þar sem hann hefur leikið listir sínar undanfarin ár.

Donni fer yfir sumarið hjá Þór/KA og þau verkefni sem upp hafa komið. Hann er spenntur fyrir því að klára sumarið af krafti og halda áfram að gefa ungum leikmönnum tækifærið.

Þá minnum við á að þátturinn er aðgengilegur á Podcast veitu iTunes.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is