KA sækir Val heim í kvöld

Handbolti
KA sækir Val heim í kvöld
Jovan ætlar að loka rammanum í kvöld!

Það er skammt stórra högga á milli í handboltanum þessa dagana. KA vann frækinn heimasigur á FH á sunnudaginn og í dag sækja strákarnir sterkt lið Vals heim klukkan 19:30. Fyrir leikinn eru liðin jöfn ásamt ÍBV í 6.-8. sæti með 9 stig og má reikna með hörkuleik.

Valsliðið er búið að vera á miklu skriði að undanförnu og er búið að vinna síðustu þrjá leiki sína. Til mikils var ætlast af liðinu í vetur og kom því róleg byrjun þeirra á vetrinum mörgum á óvart. En nú virðist liðið vera komið í gang og ljóst að strákarnir okkar þurfa að halda áfram þeirri flottu spilamennsku sem hefur einkennt liðið í síðustu leikjum.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Origo höllina og styðja KA liðið til sigurs. Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni útsendingu á Valur-TV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is