KA U tekur á móti Stjörnunni U í kvöld

Handbolti

Baráttan heldur áfram í Grill 66 deild karla í kvöld þegar ungmennalið KA tekur á móti ungmennaliði Stjörnunnar í KA-Heimilinu klukkan 19:00. Strákarnir unnu frækinn sigur á Víkingum í fyrsta leik vetrarins og ætla sér að sjálfsögðu sigur í kvöld!

Ungmennalið KA vann 2. deildina í fyrra og leikur því í næstefstu deild í ár og verður virkilega gaman að sjá hvernig liðinu mun ganga í þessari öflugu deild. Sigurinn á Víking í síðustu umferð kom mörgum spekingum á óvart enda voru Víkingar hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í efstu deild á síðustu leiktíð en sigur KA liðsins var afar sannfærandi.

Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu eindregið til að mæta og styðja strákana til sigurs en ef þið komist ómögulega í KA-Heimilið þá verður leikurinn í beinni á KA-TV og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is