KA U valtaði yfir ungmennalið Stjörnunnar

Handbolti
KA U valtaði yfir ungmennalið Stjörnunnar
Ungmennaliðið situr á toppi Grill 66 deildarinnar

Ungmennalið KA tók á móti ungmennaliði Stjörnunnar í Grill 66 deild karla í gær. KA strákarnir komu vel stemmdir til leiks og tóku strax frumkvæðið í leiknum. Eftir tíu mínútna leik var staðan 7-4 en þar með hófst einhver ótrúlegasti leikkafli sem sést hefur í langan tíma.

Með stórbrotinni vörn og markvörslu voru Stjörnupiltar gjörsamlega slegnir út af laginu. Þar til viðbótar var KA sóknin í fluggír þannig að í leikhléi var munurinn orðinn sextán mörk, 25-9.

Tímalína fyrri hálfleiks

Eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik var staðan orðin 31-13 og KA skipti nánast öllum úr byrjunarliðinu útaf og fengu óreyndari strákar að spreyta sig. Óhætt er að segja að þeir hafi allir með tölu staðið sig frábærlega því munurinn á liðunum jókst stöðugt. Leiknum lauk með tuttugu og fimm marka sigri heimamanna, 44-19. Ótrúlegar tölur í næstefstu deild meistaraflokks karla!

Tímalína seinni hálfleiks

Markvarsla þeirra Svavars Inga og Bruno var frábær og þeir dældu ófáum sendingum fram sem flestar höfnuðu hjá Þorra Starrasyni sem skilaði þeim öllum af öryggi í netið.

Mörk KA U: Þorri Starrason 11, Arnór Ísak Haddsson 6 (3 úr vítum), Jón Heiðar Sigurðsson 5, Sigþór Árni Heimisson 5, Ragnar Hólm Sigurbjörnsson 4, Daníel Örn Griffin 3, Jóhann Einarsson 3, Sigþór Gunnar Jónsson 3, Aron Daði Bergþórsson 1, Bjarki Reyr Tryggvason 1, Hafþór Helgi Þórisson 1, og Svavar Ingi Sigmundsson 1 mark.

Svavar Ingi varði 15 skot í markinu og Bruno Bernat varði 8 skot.

KA U er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Grill 66 deildinni og sitja á toppnum enda með ótrúlegt markahlutfall, 27 mörk í plús.

Næsti leikur liðsins er föstudaginn 4. október en það er útileikur gegn Þrótti Reykjavík.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is