KA vann frábæran útisigur á HK

Handbolti
KA vann frábæran útisigur á HK
2 stig í hús hjá þessum mögnuðu köppum!

KA sótti HK heim í 5. umferð Olís deildar karla í gær og má með sanni segja að mikið hafi verið undir í leiknum. Fyrir leikinn var KA með 2 stig en nýliðarnir í HK voru án stiga og freistuðu þess að jafna okkar lið að stigum á sama tíma og strákarnir okkar ætluðu sér að stinga heimamenn af.

Leikurinn fór vel af stað og komust strákarnir snemma í 0-3 og hélst munurinn á liðunum í tveimur til þremur mörkum næstu mínútur. Síðari hluta fyrri hálfleiks náðu strákarnir mest fimm marka forskoti og höfðu ansi gott tak á leiknum. Hálfleikstölur voru 12-16 en sóknarleikur KA liðsins hafði gengið mjög vel auk þess sem að varnarleikurinn var lengst af góður.

Í upphafi síðari hálfleiks var munurinn orðinn sex mörk og hann hélst næstu mínutur, allt benti því til sannfærandi sigurs KA. Þá fékk Elías Már Halldórsson þjálfari HK rautt spjald fyrir kjaft og stuttu síðar fékk Kristján Ottí Hjálmarsson beint rautt fyrir brot á Allan Norðberg. Í kjölfarið varð hálfgert stjórnleysi á vellinum og heimamenn nýttu sér það.

HK minnkaði muninn niður í tvö mörk í stöðunni 22-24, 23-25 og 24-26. Heimamenn fengu úrvalstækifæri á að minnka muninn niður í eitt mark er skot þeirra yfir allan völlinn endaði í stönginni og í kjölfarið kláruðu okkar menn leikinn vel 24-28.

Tvö gríðarlega mikilvæg stig í hús, KA liðið kemur sér vel inn í baráttuna í deildinni og er komið með fjögur stig auk þess sem að strákarnir skildu lið HK eftir á botninum án stiga. Í fyrra tapaði KA liðið báðum leikjum sínum gegn Gróttu sem var slakasta lið deildarinnar og það kostaði liðið sæti í úrslitakeppninni í lok tímabils.

Nú hafa strákarnir unnið tvo góða útisigra gegn báðum nýliðum deildarinnar og allt útlit fyrir að liðið sé búið að þroskast mikið og læra á þá leiki þar sem þeir eru taldir betri aðilinn.

Tarik Kasumovic fór hamförum í sóknarleik KA liðsins, hann endaði með 8 mörk og var valinn maður leiksins. Áki Egilsnes var öflugur að vanda og gerði 6 mörk, Dagur Gautason 4, Andri Snær Stefánsson og Einar Birgir Stefánsson 3, Patrekur Stefánsson 2 og þeir Allan Norðberg og Daníel Matthíasson gerðu 1 mark hvor.

Í markinu varði Jovan Kukobat 11 skot og Svavar Ingi Sigmundsson varði 1 vítakast.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is