KA vann sigur á Símamótinu í 6. flokki

Fótbolti
KA vann sigur á Símamótinu í 6. flokki
Frábær árangur á stærsta móti sumarsins!

Símamótið fór fram um helgina og átti KA alls 11 lið á mótinu og spreyttu þar stelpur í 6. og 7. flokki listir sínar. Það má með sanni segja að stelpurnar okkar hafi staðið sig frábærlega en 9 lið kepptu í 6. flokki og 2 í 7. flokki. KA 1 gerði sér lítið fyrir og vann sigur í efstu deild í 6. flokki og standa því uppi sem Símamótsmeistarar.


Glæsilegir fulltrúar KA á Símamótinu í ár

KA 3 og KA 5 unnu einnig sigra í sínum keppnum auk þess sem önnur lið KA gerðu mjög vel í sínum keppnum. Símamótið er stærsta mót ársins hjá stelpunum og klárt mál að framtíðin er ansi björt hjá okkur í KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is