KA vann sumarmót HSÍ í 5. flokki yngri

Handbolti
KA vann sumarmót HSÍ í 5. flokki yngri
Strákarnir sigurreifir eftir frábæra helgi!

Strákarnir á yngra ári 5. flokks gerðu sér lítið fyrir og unnu efstu deild á sumarmóti HSÍ um helgina. Handknattleikssambandið hefur verið að halda sumarmót í júní fyrir yngriflokkana þar sem að þurfti að aflýsa tveimur síðustu mótunum á Íslandsmótinu vegna Covid-19.

Efri röð frá vinstri: Úlfar Örn Guðbjargarson, Ingólfur Árni Benediksson, Leó Friðriksson, Aron Daði Stefánsson og Stefán Árnason þjálfari
Neðri röð frá vinstri: Þórir Hrafn Ellertsson, Heimir Sigurpáll Árnason, Almar Andri Þorvaldsson og Ragnar Orri Jónsson.

KA strákarnir sýndu frábæra takta um helgina og töpuðu ekki leik sem tryggði þeim sigurinn á mótinu. Stefán Árnason þjálfari þeirra sagði strákana hafa spilað ótrúlega góðan handbolta og sóknarleikurinn hafi verið sérstaklega góður hjá þessu öfluga liði okkar.

Um seinustu helgi spilaði eldra árið á samskonar móti og enduðu strákarnir í 2. sæti í efstu deild og má því með sanni segja að framtíðin sé björt hjá okkur í handboltanum. Við óskum strákunum til hamingju með þennan frábæra árangur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is