Karen María valin í æfingahóp A-landsliðsins

Fótbolti
Karen María valin í æfingahóp A-landsliðsins
Karen María fær frábært tækifæri!

Þorsteinn H. Halldórsson nýráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu valdi í dag fyrsta æfingahóp sinn. Hópurinn mun æfa dagana 16.-19. febrúar næstkomandi en aðeins er um að ræða leikmenn sem leika á Íslandi að þessu sinni.

Þór/KA á einn fulltrúa í hópnum en það er hún Karen María Sigurgeirsdóttir. Karen sem verður tvítug á árinu hefur verið lykilmaður í U19 ára landsliði Íslands þar sem hún hefur leikið 10 landsleiki og gert í þeim fjögur mörk. Þar áður lék hún 3 landsleiki fyrir U17 ára landsliðið.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Karen leikið 63 leiki fyrir meistaraflokk Þórs/KA í deild og bikar og gert í þeim 10 mörk. Það er því komið að stóra tækifærinu hjá Karen Maríu og óskum við henni til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.

Anna Rakel Pétursdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir eru einnig í hópnum en þær leika í dag með Val og Breiðablik en eru að sjálfsögðu uppaldar hjá Þór/KA og gaman að sjá þær í hópnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is