Viðburður

Fótbolti - 18:00

Kynningarkvöld knattspyrnudeildar er þriðjudaginn 30. apríl

Hið árlega kynningarkvöld knattspyrnudeildar KA er á þriðjudaginn næstkomandi klukkan 18:00 í veislusal KA-heimilisins. Það verður öllu tjaldað til og hægt að koma með alla fjölskylduna á kynningarkvöldið og fá í leiðinni gómsætan grillmat og með'í fyrir litlar 2.000kr á mann. 

Óli Stefán Flóventsson kynnir KA-liðið til leiks fyrir stuðningsmönnum og kynnir þjálfarateymi sitt gaumgæfilega. 

Þá verða léttar umræður um liðið og möguleikana í sumar. Ársmiðarnir verða á sínum stað og það fer hver að verða síðastur til þess að tryggja sér ársmiða.

KA-menn ætla að hafa grillkjöt á boðstólnum fyrir litlar 2.000kr og þá verða einnig drykkir á staðnum!

Eins og undanfarin ár eru þrír ársmiðar í boði á heimaleiki KA í sumar og eru þeir eftirfarandi:

Bronsmiði - 20.000 kr

Bronsmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni.

Athugið að 16-25 ára fá Bronsmiðann á 10.000 kr

Silfurmiði - 30.000 kr

Silfurmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni.
Silfurmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.

Gullmiði - 50.000 kr

Gullmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni.
Gullmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.
Fyrir tvo leiki í sumar verður flottur matur og spjall í boði fyrir gullmiðahafa


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is