Lokaleikur sumarsins í Kópavoginum

Fótbolti
Lokaleikur sumarsins í Kópavoginum
Strákarnir eru klárir í slaginn!

Í dag klukkan 14:00 fer fram lokaumferðin í Pepsi deild karla og sækir KA lið Breiðabliks heim á Kópavogsvöllinn. Þetta verður síðasti leikur KA undir stjórn Tufa og hvetjum við að sjálfsögðu alla KA menn fyrir sunnan til að drífa sig á völlinn og styðja strákana.

Heimamenn í Breiðablik eiga enn tölfræðilega möguleika á Íslandsmeistaratitlinum en liðið situr í 2. sæti deildarinnar og er tveimur stigum á eftir toppliði Vals. KA situr hinsvegar í 6. sætinu og getur með jafntefli eða sigri gulltryggt það sæti og þar með enda í efri hluta deildarinnar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is