Mikilvæg stig í húfi gegn HK

Fótbolti
Mikilvæg stig í húfi gegn HK
Strákarnir ætla sér þrjú stig!
KA tekur á móti HK á Greifavellinum á fimmtudaginn klukkan 16:00 í mikilvægum leik í Pepsi Max deildinni. Með sigri geta strákarnir jafnað HK í 7. sætinu en HK er með 18 stig eftir 15 leiki á sama tíma og KA er með 15 stig í 10. sætinu eftir 14 leiki.
 

Alls geta 400 einstaklingar mætt á leikinn. 200 í stúkuna þar sem gengið er inn um aðalinnganginn og 200 í grasstúkuna þar sem gengið er inn norðan við völlinn.

Athugið að aðilar yngri en 16 ára eru inni í þessum tölum. Hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is