Mikilvægur leikur hjá Þór/KA í Boganum

Fótbolti
Mikilvægur leikur hjá Þór/KA í Boganum
Hulda Karen er slár í slaginn!

Þór/KA tekur á móti Selfoss klukkan 13:30 í Boganum í dag í mikilvægum leik í Pepsi Max deild kvenna. Stelpurnar unnu góðan sigur í síðustu umferð og ætla sér önnur mikilvæg þrjú stig í dag í baráttunni um áframhaldandi veru í efstu deild.

Fyrir leikinn er Þór/KA með 15 stig í 8. sæti deildarinnar og er tveimur stigum fyrir ofan FH sem er í fallsæti. Þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu og klárt mál að nú skiptir hvert einasta stig gríðarlegu máli. KR er á botni deildarinnar með 10 stig en á tvo leiki til góða á okkar lið.

Gestirnir úr Selfoss eru hinsvegar í 3. sætinu með 22 stig en fyrir tímabilið voru Selfyssingar með háleit markmið og ekki spurning að þær ætluðu sér stærri hluti en það sem tímabilið hefur gefið þeim hingað til. Það má því reikna með erfiðum leik í Boganum í dag.

Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki komast, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is