Myndaveisla frá lokaleik sumarsins

Fótbolti
Myndaveisla frá lokaleik sumarsins
Haukur, Almarr, Elfar og Hallgrímur voru heiðraðir

KA vann eins og frægt er orðið glæsilegan 4-2 sigur á Fylkismönnum í lokaleik Pepsi Max deildarinnar um helgina. Sigurinn tryggði KA 5. sæti deildarinnar sem er besti árangur KA frá árinu 2002 og ljóst að við getum litið jákvætt til næsta tímabils enda nýliðið sumar ansi lærdómsríkt.

Egill Bjarni Friðjónsson og Sævar Geir Sigurjónsson ljósmyndarar voru á leiknum og birtum við hér myndaveislur þeirra og minnum á að myndir frá leikjum sumarsins má finna á síðunni.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum


Smelltu á myndina til að skoða myndir Sævars Geirs frá leiknum

Á sama tíma og við þökkum ykkur kærlega fyrir magnaðan stuðning í sumar kæru KA-menn viljum við á heimasíðunni þakka þeim Sævari, Agli Bjarna og Þóri Tryggva fyrir þeirra framlag en þeir hafa myndað KA liðið í bak og fyrir rétt eins og fyrri ár. Ótrúlega mikilvægur þáttur í okkar starfi að hafa þá í okkar liði.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is